Taxi Service Iceland App
Með Taxi Service Iceland appið í snjallsímanum þínum getur þú bókað leigubíl á einfaldan hátt . Þegar appið opnast mun það finna staðsetningu þína og birta heimilisfangið.
Ef þú vilt bóka leigubíl fyrir annað heimilisfang en þitt geturðu þú valið heimilisfang frá landakorti eða skráð heimilisfang. Athugaðu að ef appið leyfir ekki að skrá heimilisfang getur ástæðan verið að síminn nái ekki netsambandi eða að netsamband sé ekki virkjað í símanum.
Þegar þú opnar appið í fyrsta sinn eftir að hafa verið sett upp, færðu beiðni um að skrá farsímanúmer og fá staðfestingarkóða. Upplýsingarnar eru vistaðar undir “Profile” svo þú þurfir ekki að skrá þær aftur í hvert sinn sem þú gerir pöntun. Athugaðu að það þarf að setja rétt landsnúmer fyrir framan símanúmerið.
Þurfir þú fleiri en einn leigubíl gerirðu einfaldlega aðra pöntun.
. Fyrirfram panta leigubíl.
. Fylgjast með stöðu pöntunar þinnar og sjá leigubílinn þinn á korti.
. Afpanta leigubílinn – allt þar til bíll er kominn í ferðina.
. Hægt er að hafa hringja í bílstjóra þegar pöntunin er komin á bíl.
. Skoða eldri bókanir þínar.
. Færð kvittun með tölvupósti ef netfang er skráð.
. Búa til uppáhalds heimilisföng til að flýta pöntunum á fyrir staði sem þú pantar oft á.
. Velja heimilisföng frá nýlegum pöntunum sem gerðar hafa verið.
- Gefið bílstjóranum einkunn. 1 - 5 stjörnur og ummæli
Fyrir nánari upplýsingar eða tillögu að endurbótum / breytingum, vinsamlegast hafið samband við [email protected]
Persónuverndarstefna
Taxi Service
ALMENNT
Bifreiðastöðin Taxi Service ehf., kt. 650299-2729 Blikahólum 2, 111 Reykjavík (hér eftir “Taxi Service”) hefur ávallt lagt áherslu á að vernda persónuupplýsingar viðskiptavina sinna og virða réttindi þeirra. Taxi Service hefur sett sér persónuverndarstefnu, þar sem kveðið er á um hvernig persónuupplýsingar eru unnar og varðveittar, í hvaða tilgangi og hvernig þeim sé miðlað og öryggis þeirra gætt, sem byggir á gildandi lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.
Persónuverndarstefnan tekur aðeins til einstaklinga, ekki lögaðila. Séu einstaklingar í forsvari fyrir viðskiptavini sem eru lögaðilar gilda ákvæði stefnunnar um vinnslu persónuupplýsinga um þá einstaklinga eftir því sem við getur átt.
„Persónuupplýsingar” eru upplýsingar um persónugreindan eða persónugreinanlegan einstakling. Sá telst persónugreinanlegur sem tengja má upplýsingar við, svo sem með tilvísun í nafn, kennitölu, netauðkenni eða einn eða fleiri þætti sem teljast til einkenna og aðgreina hann frá öðrum. Upplýsingar sem eru ópersónugreinanlegar teljast ekki persónuupplýsingar.
Meðferð og vinnslu persónuupplýsinga fylgir viðvarandi ábyrgð. Taxi Service mun gæta þess að persónuverndarstefnan verði ávallt í samræmi við gildandi kröfur þar um.
SÖFNUN OG MEÐHÖNDLUN PERSÓNUUPPLÝSINGA
Taxi Service safnar og varðveitir persónuupplýsingar um starfsmenn, viðskiptavini, birgja og aðra þá aðila sem eiga í viðskiptum við félagið og fyrirtækinu er skylt að varðveita í samræmi við lög, samninga og samþykki hins skráða eða vegna annarra lögvarinna hagsmuna Taxi Service.
Upplýsingarnar koma ýmist beint frá hinum skráða eða félagi og/eða félagasamtökum sem hann starfar fyrir eða á aðild að, s.s. í gegnum smáforrit (“app”), vefsíðu, tölvupóst eða síma. Sem dæmi um upplýsingar sem unnar eru má nefna eftirgreint:
kennitölu, heimilisfang, netfang, símanúmer og/eða aðrar upplýsingar sem nauðsynlegar eru vegna samskipta og auðkenningar
upplýsingar sem verða til í samskiptum við viðskiptavini, s.s. beiðnum um akstursþjónustu, fyrirspurnir tengdar týndum munum eða kvartanir vegna veittrar þjónustu
upplýsingar frá þriðja aðila, meðal annars fyrirtækjum eða stofnunum sem búa yfir persónuuplýsingum, þ. á m. þjóðskrá og opinberum upplýsingaveitum, sbr. t.d. ja.is eða 1819.is
reikningsupplýsingar og greiðslusaga sem tengjast reikningagerð og bókhaldi, þ. á m. upplýsingar frá Creditinfo í tengslum við ákvörðun um reikningsviðskipti
Taxi Service safnar og varðveitir upplýsingar um forsvarsmenn og starfsmenn lögaðila sem eru viðskiptavinir eða birgjar Taxi Service, að því marki sem nauðsynlegt er. Dæmi um slíkar upplýsingar eru þær sem tilgreindar eru hér að ofan allt eftir því sem við getur átt hverju sinni.
Taxi Service safnar einungis upplýsingum sem nauðsynlegar eru í starfsemi félagsins hverju sinni. Kjósi aðila að veita ekki persónuupplýsingar er möguleiki á því að Taxi Service geti ekki veitt þjónustu til viðkomandi.
TILGANGUR OG HEIMILD TIL VINNSLU PERSÓNUUPPLÝSINGA
Persónuupplýsingarnar eru aðeins unnar í skýrum tilgangi í samræmi við persónuverndarlög og stefnu þessa. Taxi Service safnar persónuupplýsingum um framangreinda aðila í þeim tilgangi að veita þeim aðgang að þjónustu sinni í samræmi við samninga og samskipti við hlutaðeigandi.
Vinnsla Taxi Service á persónuupplýsingum er á grundvelli samnings við viðskiptavini, á grundvelli fyrirmæla í lögum eða reglum, á grundvelli lögmætra hagsmuna Taxi Service, fyrirmæla og/eða upplýsts samþykkis viðskiptavinar. Eftirfarandi dæmi eiga við um slíka vinnslu:
skráning samskipta- og persónuupplýsinga, s.s. í bókhalds-, leigubíla- og smáforritskerfi (“app”) og netbókun Taxi Service
varðveisla persónuupplýsinga á grundvelli laga um ársreikninga og laga um bókhald
VARÐVEISLA PERSÓNUUPPLÝSINGA OG AFHENDING TIL ÞRIÐJA AÐILA
Taxi Service varðveitir persónuupplýsingar á meðan lögmætir hagsmunir krefjast, enda sé varðveislan ávallt í málefnalegum tilgangi.
Taxi Service kann að miðla persónuupplýsingum um viðskiptavini sína til þriðja aðila. Dæmi um slíka miðlun eru upplýsingar sem skráðar eru í tölvukerfum Taxi Service, sem hýst er af þriðja aðila, vegna þjónustu ráðgjafa sem vinna í þágu Taxi Service og vegna þjónustu innheimtuaðila við innheimtu skulda.
Taxi Service kann einnig að vera gert að afhenda upplýsingar til þriðja aðila á grundvelli heimildar og/eða skyldu í settum lögum og reglum (s.s. lögreglu), þ.m.t. úrskurða stjórnvalda og dómstóla. Í slíkum tilvikum mun Taxi Service ávallt gæta réttinda viðskiptavina.
RÉTTINDI EINSTAKLINGA SEM VARÐA PERSÓNUUPPLÝSINGAR SEM UNNIÐ ER MEÐ
Einstaklingur á rétt á því að fá upplýsingar um það frá Taxi Service hvort unnið sé með persónuupplýsingar um hann. Einstaklingur á jafnframt rétt á því að fá aðgang að þeim persónuupplýsingum sem unnar eru um hann, upplýsingum um tilgang vinnslunnar, viðtakendur upplýsinganna, reglur um varðveislutíma, réttindi sín og heimild til þess að leggja fram kvörtun til Persónuverndar.
Við tilteknar aðstæður getur einstaklingur krafist þess að upplýsingum um hann verði eytt, til dæmis þegar varðveisla þeirra er umfram þann tíma sem lög og reglur heimila. Einstaklingur getur átt rétt til þess að óáreiðanlegar eða rangar upplýsingar séu leiðréttar eða þeim jafnvel eytt.
Einstaklingur getur andmælt vinnslu persónuupplýsinga sem fer fram á grundvelli lögmætra hagsmuna vegna sérstakra aðstæðna er varða hann. Taxi Service svarar andmælum innan 14 daga frá móttöku þeirra. Synjun má kæra til Persónuverndar.
Einstaklingur kann að þurfa sæta takmörkunum á framangreindum réttindum á grundvelli gildandi laga og reglna. Þá kunna hagsmunir og réttindi Taxi Service að takmarka rétt einstaklings, t.d. vegna sjónarmiða sem tengjast höfundarrétti eða annarskonar eignarréttindum, eða vegna réttinda þriðja aðila sem Taxi Service telur ganga framar réttindum viðkomandi.
ÖRYGGI PERSÓNUUPPLÝSINGA
Taxi Service gætir þess í hvívetna að vernda persónuupplýsingar sem unnið er með í þeim tilgangi að koma í veg fyrir óheimila notkun, afritun, afhendingu til þriðja aðila, sem og til að fyrirbyggja að upplýsingar glatist eða séu ranglega skráðar. Persónubundnar aðgangsstýringar að persónuuplýsingum eru dæmi um þannig öryggisráðstöfun.
SAMSKIPTI VIÐ TAXI SERVICE OG PERSÓNUVERND
Taxi Service ber ábyrgð á vinnslu og meðferð persónuupplýsinga í starfsemi sinni. Hægt er að senda fyrirspurnir, ábendingar eða athugasemdir til félagsins um meðferð persónuupplýsinga á netfangið [email protected]. Þá er einnig hægt að hafa samband alla virka daga í gegnum síma 5885500.
Komi upp ágreiningur um meðferð persónuverndarupplýsinga er unnt að senda kvörtun til Persónuverndar á netfangið [email protected] eða með því að senda bréfpóst til Persónuverndar, Rauðarárstíg 10, 105 Reykjavík. Sjá nánar www.personuvernd.is
BREYTINGAR OG ENDURSKOÐUN Á PERSÓNUVERNDARSTEFNUNNI
Persónuverndarstefnan kann að taka breytingum vegna breytinga á löggjöf, starfsemi Taxi Service eða af öðrum ástæðum sem kunna að kalla á slíkt. Breytingar á stefnunni öðlast gildi við birtingu uppfærðrar stefnu á heimasíðu félagsins.
Við erum hér 24/7
Við erum á vaktinni allan sólarhringinn.